Sælir,

Ég var að fá mér þráðlausan acces point frá Planet og á í smá vandamáli.
Málið er það að ég næ engu sambandi við hann , ég er búinn að koma þráðlausa netkortinu fyrir í vélinni minni og það virðist virka fínt.
En þegar ég ætla að reyna að komast inn á boxið til að stilla það gerist ekkert, ekki einu sinni þegar ég tengi í það með netkapli.
Vitið þið hvort að svona acces point eigi að svara pingi ?
Ég er rosalega lítið inn í þessum netkerfum eins og þið kannski sjáið

en allavega skjótið á mig öllum mögulegum uppástungum sem ykkur dettur í hug.

Er búinn að prófa þetta klassíska eins og að restarta öllu og gera “repair”.

Þetta er planet WAP 4033.
______________________________________