Ég veit því miður of lítið um þennan bíl en þetta er Volvo Safety Car Concept. Það sem að ég veit þó um hann er að útlitið fær hæstu einkun og ég mun fylgjast vel með verkum peter Horbury hönnuðar hans.
Á leið inn í Grímsvötn um Hvítasunnuna 2001. Þarna lauk æðisgengnum kappakstri milli þessa tveggja bíla, Droverinn sigraði enda mjög mikið breyttur bíll. gaurarnir á þeim bíl eru þarna að tína egg, sem þeir voru með í bílnum, úr toppnum. Ég og Valdi sem vorum í hinum bílnum þurftum hinsvegar að bíta í það súra epli að hafa brotið vodka flösku í einu jumpinu og höfðum bara sterka lyktina alla helgina en engan vökva :-( og svo náttúrulega vodka blönduð matvæli (vodka pasta nammi namm)