Gleymt lykilorð
Nýskráning
Vélar

Ofurhugar

Mal3 Mal3 2.096 stig
Aiwa Aiwa 1.776 stig
KITT KITT 1.650 stig
Dashinn Dashinn 1.480 stig
JoeyThunder JoeyThunder 1.296 stig
wiss wiss 1.264 stig
sputnik sputnik 1.244 stig

Bilar (0 álit)

Bilar Þetta er mér sagt að sé Subaru Impreza í blæjuútgáfu sem ég á bágt með að trúa því ég hef aldrei vitað til að Subaru hafi framleitt blæjubíl.

Jeppar (0 álit)

Jeppar Í Þórsmörk '98, einn flottasti jeppi á landinu, vél 350 corvetta, 350 hestöfl, 700 skipting, dana 44 að framan, dana 60 fljótandi að aftan, loftpúðar allann hringinn, Warner spil húkkað framan á eða aftan, automatic loft system fyrir loftpúðana og allt annað sem þú getur huxað þér.

Flug (0 álit)

Flug MD600 NOTAR Draumur í dós.
Stélbóman er svo snilldarlega hönnuð að þegar vélin er tekin upp í vok(hover) þarf nánast ekkert pedalástig því bóman er með vænglagi og eykst lyftið með auknu ástreymi frá aðalþyrlinum.

Einnig gerir stélþyrilsleysið þessa vél eina af lágværustu þyrlum í notkun í dag.

Flug (0 álit)

Flug Hér sést hvað það er nauðsynlegt að hugsa þegar verið er að hlaða flugvélarinnar - þetta er nú samt töluvert ýkt dæmi!

Flug (0 álit)

Flug Chinook að láta frá sér skúr við rafveituhúsið í Elliðaárdal

Bilar (0 álit)

Bilar Petter Solberg hér á ferð í Rally New Zealand sem hófst í gærkvöldi. Vegna tímamismunar eru sérleiðirnar keyrðar að nóttu til að íslenskum tíma og því ættu úrslit að vera ljós á sunnudagsmorgun.

Bilar (0 álit)

Bilar Menn eru greinilega eitthvað farnir að minnka innsendingar á myndum og á meðan verðum við bara að sætta okkur við framhald á Impreza seríunni :)

Flug (0 álit)

Flug Hver segir svo að það sé ekki hægt að fljúga til tunglsins á 747?

Bilar (0 álit)

Bilar Veit nú ekki hvað þessi bíll heitir nákvæmlega en þetta er Lexusinn úr “Minority report”

Bilar (0 álit)

Bilar Porsche Boxster, ókrýndur konungur roadsteranna, hefur nú fengið smávegis yfirhalningu bæði útlitslega og undir húddinu. Framstuðaranum hefur verið breytt eilítið og loftristar endurbættar. Afturstuðarinn er stærri en áður og bíllinn er þéttari á að líta. Afturljósin eru ný, og búið er að setja glerglugga í blæjuna. Bæði Boxter og Boxter S eru nú öflugri, 228 og 260 hestöfl. Hóflegar breytingar en góðar.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok