Nissan Z 350
Stola breytti þessum Porsche Boxster til að sýna getu fyrirtækisins. Hugmyndin er að gera nútímalega útgáfu af Porsche 550 Spyder, en þannig bíl dó James Dean einmitt í. Stola fannst ekki nóg að breyta útlitinu heldur eru aðrar breytingar meðal annars að setja upptjúnnaða vél úr Porsche 911 Turbo í gripinn. Þó það hefði ekki verið ráðgert verða örfáir S82 smíðaðir fyrir einhverja heppna einstaklinga.
Citroën SM, stór GT bíll sem kom fyrst fram 1970 en á þeim tíma átti Citroën meirihluta í Maserati. SM var með V6 vél frá Maserati og allt raf- eða vökvaknúið eins og Citroën var lagið. Það má segja að viðhald hafi ekki verið einfalt mál í þessum framdrifna, hraðskreiða og glæsileg GT bíl sem var hætt að framleiða 1975 eftir að aðeins tæplega 13.000 eintök höfðu verið smíðuð.