Vélin lenti í ókyrrð frá þotu og flugmaðurinn missti stjórnina með þessum afleiðingum.Flugmanninum var bjargað ómeiddum og vélinni óskemmdri.
Subaru Impreza Sports Wagon Euro Style Concept sem var kynntur á Bílasýningunni í Tokyo um daginn. Ekki er ég viss um hvernig Japanarnir fengu út að þetta útlit myndi ganga betur í Evrópubúa en framendinn minnir óneitanlega á Subaru Legacy B4 Blitzen sem mér skilst að Porsche hafi eitthvað komið nálægt hönnun á
Þetta stórglæsilega eintak af Lamborghini 400GT '66 seldist í síðasta mánuði á uppboði. Grófleg áætlun segir að verð til landsins væri um 12 milljónir (gæti jafnvel verið lægra ef fornbílar fá undanþágur, einhver?). Væri ekki amalegt að sjá svona á götunum hér heima innan um alla rándýru eðalvagnana sem standa hvort eð er óhreyfðir að mestu…