Bilar Citroën CX Prestige er alvöru límúsína með 309 cm hjólahaf þótt útlitið minni kannski frekar á geimskip. Það er einmitt partur af sjarmanum og tæknibúnaðurinn er alveg í takt við útlitið, það er engu líkt að keyra svona bíl. Takið eftir íhvolfri afturrúðunni, en loftstraumur sér um að halda henni hreinni svo að rúðuþurrka er óþarfi.