Gleymt lykilorð
Nýskráning
Tónlist

Ofurhugar

thorok thorok 3.424 stig
ghozt ghozt 2.270 stig
EXOZ EXOZ 2.216 stig
dordingull dordingull 2.170 stig
HoddiDarko HoddiDarko 2.026 stig
Brunahani Brunahani 1.556 stig
negrasvikari negrasvikari 1.400 stig

Stjórnendur

Dissection - Storm of the Light's Bane. (17 álit)

Dissection - Storm of the Light's Bane. Þetta er mín uppáhaldsplata og hérna er smá dómur um hana sem ég gerði sem íslenskuverkefni:

Storm of the Light's Bane er önnur breiðskífa sænsku hljómsveitarinnar Dissection. Hljómsveitin var stofnuð árið 1989 í smábænum Strömstad í Vestur-Svíþjóð og naut fyrsta breiðskífa þeirra, The Somberlain, nokkurra vinsælda. Storm of the Light's Bane, eða Stormur Ljóssins Bana ein og það útleggðist á íslensku, kom út árið 1995 er hins vegar platan sem kom Dissection á kortið.

Lögin á þessari plötu eru heldur í lengri kantinum eins og tíðkast oft hjá jafn tæknilegum hljómsveitum og þessum sænsku drengjum. Þau verða síður en svo langdregin þar sem farið er með hlustandann í ferðalag. Eina stundina er maður staddur í trjálundi þar sem engill dansar og skuggaleg vera fylgist grannt með en fyrr en varir er engillinn dáinn og við fylgjumst með ferð hans til þess staðar sem látnir englar hvíla á. Fjölbreytnin og athyglin sem þeir veita smáatriðum spila vel saman og vinna að því að skapa sem besta heild. Hver og einn hljóðfæraleikari gefur allt sitt og úr verður það meistaraverk sem Storm of The Light's Bane er.

Af hverri einustu nótu og höggi drýpur illskan, myrkrið, eymdin og guðlastið. Dissection er greinilega miklir aðdáendur þungarokks af gamla skólanum og mætti segja sem svo að þeir séu þungarokkssveit sem dvalið hefur í vítislogum í árþúsundir og séu komir á jörðina til þess að láta okkur þjást með þeim…

…og við njótum þess.

Pink Floyd (29 álit)

Pink Floyd Pink Floyd Turninn

Aaron Gillespie (9 álit)

Aaron Gillespie Trommari/Söngvari í underOATH
Söngvari/Gítar og lagahöfundur í sideprojectinu hans The Almost.

snilldar trommari og söngvari, einfaldlega snillingur!

<object width=“425” height=“355”><param name=“movie” value="http://www.youtube.com/v/6vZwZjH-v4c&rel=1“></param><param name=”wmode“ value=”transparent“></param><embed src=”http://www.youtube.com/v/6vZwZjH-v4c&rel=1“ type=”application/x-shockwave-flash“ wmode=”transparent“ width=”425“ height=”355"></embed></object

Dean ML Dean from hell (21 álit)

Dean ML Dean from hell já þessi verður minn eftir 3-4 mánuði, síðan verður skellt sér á preamp og notað youtube accountið. með hvaða preömpum mælið þið með? ég þarf að getað tekið hljóðið upp inná tölvuna þannig að ég fokki þvi ekki upp í gegn um magnara.

Emerson, Lake and Palmer (7 álit)

Emerson, Lake and Palmer Rosalegir þessi drengir. Og eins og einhver skrifaði á huga hér um daginn..“Tónfræðilega Geðbilaðir!”

akon (20 álit)

akon akon er snilli

Steppenwolf! (11 álit)

Steppenwolf! Jæja..Hvernig eru “Hugarar” að fíla Steppenwolf?

Deep Purple (7 álit)

Deep Purple Hvernig kannst ekki við Deep Purple sem gerðu garðinn frægan með laginu Smoke on the Water sem kom út árið 1972 á plötunni Machine Head.

Deep Purple hafa tekið þó nokkrum mannabreytingum í gegnum tíðina og komið nokkrum sinnum til Íslands að spila eins og margir vita.

Korn, Manson (20 álit)

Korn, Manson Djonathan Davis og Marilyn Manson

Bítlarnir mínir (16 álit)

Bítlarnir mínir Kóngarnir, einfaldlega besta hljómsveit allra tíma
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok