Afmæistónleikar dordingull.com (tónleikar 1 af 2), athugið að tónleikarnir eru einnig útgáfutónleikar hljómsveitarinnar Elexír. Föstudagurinn 23.mars 2001 í Kakóbarnum Geysi.
Flyer fyrir Wacken Open Air Heavy Metal hátíðina í þýskalandi, en þar koma að jafnaði fram eitthvað um 70 hljómsveitir á fjórum sviðum. Framlag Íslendinga á hátíðinni verður enginn annar en Eiríkur Hauksson með hinni nýupprisinni hljómsveit Artch. Heimasíða Artch: http://www.artch.net þar er að finna hljóðdæmi af sveitinni.
Núna á föstudaginn á kakóbarnum er loksins komið að afmælistónleikum Forgarðs Helvítis. Tónleikarnir hefjast á slaginu 20:30 og að sjálfsögðu er frítt inn og áfengirdrykkir með öllu bannaðir. Meðal hljómsveita sem spila á þessu merka kvöldi eru : Potentiam, I Adapt, Mictin, Sólstafir og Mínus. Á afmælistónleikunum ætlar Forgarður Helvítis að taka lög frá eftirtöldum hljómsveitum:Nailbomb, Terrorizer, Brutal Truth, Napalm Death og Dark Throne. Þetta eru allt lög af einhverjum fyrstu plötum þessara hljómsveita en hér verður ekki gefið upp hvaða lög við tökum. Við erum búnir að komast að því að það er hægt að spila sum þessara hröðustu laga í heimi enn hraðar!!!! - Grjóthörðustu tónleikar í langan tíma.