Metall Núna á föstudaginn á kakóbarnum er loksins komið að afmælistónleikum Forgarðs Helvítis. Tónleikarnir hefjast á slaginu 20:30 og að sjálfsögðu er frítt inn og áfengirdrykkir með öllu bannaðir. Meðal hljómsveita sem spila á þessu merka kvöldi eru : Potentiam, I Adapt, Mictin, Sólstafir og Mínus. Á afmælistónleikunum ætlar Forgarður Helvítis að taka lög frá eftirtöldum hljómsveitum:Nailbomb, Terrorizer, Brutal Truth, Napalm Death og Dark Throne. Þetta eru allt lög af einhverjum fyrstu plötum þessara hljómsveita en hér verður ekki gefið upp hvaða lög við tökum. Við erum búnir að komast að því að það er hægt að spila sum þessara hröðustu laga í heimi enn hraðar!!!! - Grjóthörðustu tónleikar í langan tíma.