Ég og Árni Víkingur(aðstoðardómari) erum að koma af stað nokkurskonar klúbbi fyrir Warhammer Fantasy spilara. Fyrir þá sem hafa áhuga þá hittumst við yfirleitt á laugardögum um hádegið og spilum fram að kvöldmat. Það er búið að fækka svolítið af spilurum síðan að aðstaðan var flutt úr Nexus(Fáfni) og svo aftur þangað þannig að við viljum sjá smá líf í þessu. Þar sem að það er EKKERT mót á næstunni viljum við kvetja alla sem spila að mæta niður í Nexus með herina sína(alveg sama hversu stórir þó að 2000+ væri hentugast). Þetta er opið fyrir alla á öllum aldri, en við erum þó helst að leita að reyndari og eldri spilurum og verða jafnvel sett saman einhverjir stórir og skemmtilegir bardagar(eins og í gamladaga). Ef jákvæð svör fást við þessum korki þá læt ég vita hvenar næst verður hist.<br><br>Azmodan.

“Like A Bat Out of Hell Ill Be Gone When The Morning Comes…”