Þetta er mesta snilld ever. Ef þú spilar eitthvað af eftirtöldu: Counter strike, Diablo 2, Quake, Baldursgate, Ultima Online eða UT þá ættirðu að elska Endless ages. Ég er búinn að vera beta testa hann núna og þetta er besti leikur sem ég hef prufað. Einfaldasta lýsingin á honum er að hann er eins og blanda af Diablo 2 og Counter. Þetta er shoot em up - roleplaying leikur. Þú sérð út um augu caractersins þíns, skýtur þannig eins og í CS en samt ertu með skills og exp. points eins og er í RPG. EN BÍÐIÐ, ÞAÐ FALLEGASTA ER: 3000 MANNS Á EINN SERVER! Þetta er realtime leikur þar sem hver server mun taka 3000 manns og tímin líður alltaf jafn í þessum leik. þeas það kemur nótt og dagur og þess háttar. Samt laggar maður ekki mikið, er að spila á 256k adsl og pinga 150 til serversins, en síðan koma Evrópskir serverar og marr mun líklegast pinga um 60 - 70 á 256k. Grafíkin er snilld, gameplayið er bara ótrúlegt, Þú getur Verið herforingi, barþjónn, bílvirki eða jafnvel dýratemjar. Alveg hrein snilld! Samt einn galli, þegar leikurinn kemur út í þessari viku verður fólk að borga 10$ á mánuði til þess að geta spilað…

Er einhver hérna sem hefur spilað betuna eða vill spila nýja leikin? Er að spá í að stefna íslenskt klan…

www.endlessages.com/
www.endlessagesportal.com/