Sælir félagar.
Eflaust hafa margir hér náð sér í Multiplayer Demoið af Savage sem er hér á Huga og vonandi hefur mörgum fundist þetta jafn flott og mér!
Þessi leikur er þvílíkt góður hvort sem þú ert a pæla í því a fíflast með félögunum, spila með kolrugluðum skotglöðum brjálæðingum eða taka upp almennilegt team-play og sýna andstæðingunum hver ræður!

Hér er heimasíðan fyrir forvitna ;)
http://www.s2games.com/

Ég er í raun ekki að senda inn þessa grein til þess að segja frá þessum leik eða predika um hann heldur til þess að biðja fólk a kíkka aðeins út af Counter Strike serverunum og sjá þessa nýju og skemmtilegu leiki sem eru að lýta dagsins ljós!
Málið er að leikir eins og þessi sem bjóða upp á þvílíka skemmtun hasar og team-play verða frægir í útlöndum en ná aldrei nægri frægð hér á Íslandi til þess að íslenskir serverar verði settir upp með þeim!
Ekki það að Half-Life modin séu ekki brillíant en allt í góðu að opna augun fyrir þessum gullmolum sem við löbbum bara framhjá ;)

Haldið því raunverulegu félagar! Yfir og út

Stríðsmúsin :P