EA Sports vantar aðstoð Þar sem að menn hérna hafa verið duglegir við að safna saman upplýsingum vegna CM þá held ég að þetta sé besti staðurinn til að pósta þessu þar sem að mikið af upplýsingunum er hugsanlega þegar til.

EA Sports eru að leita að íslenskum aðila/aðilum sem geta aðstoðað þá við upplýsingaöflun fyrir FIFA 2004. Þetta kom inn á mitt borð sem félaga í World Football Organization en við rekum umfangsmikinn og sístækkandi gagnagrunn með upplýsingum um knattspyrnuna um heim allan.

Ég hef ekki kynnt mér hvað er í boði hjá EA, kannski bara nafn á kreditlista en áhugasömum er bent á að senda mér tölvupóst á j.b.jensson AT worldfootball.org (setjið @ þarna á réttan stað, nota þetta form hér á vefnum til að forðast að spammarar grípi netfangið). Ég get þá gefið upp netfangið hjá réttum aðila innan EA Sports.
Summum ius summa inuria