Sæl veriði.

Ég horfði á “Hilmir Snýr Heim” trailerinn um daginn og fannst hann líta vel út. Ég fór svo aðeins að spá í hann, og sá að fólk hér kallaði köngulóna sem kom í 0,45 sek. “Shelob/Skellu”. Ég fór að hugsa “Þetta er ekkert Skella” mig minnir frá því þegar ég las bækurnar síðast (rúmlega ár síðan) að henni hafi verið lýst <b>miklu</b> stærri en Fróði og Sómi og ímyndaði ég mér hana mun stærri. Ég held að þetta sem við sáum hafi bara verið eitt af mörgum börnum hennar. Ég tel þetta rétt hjá mér, og vona að svo sé, en það kemur ekki í ljós fyrr en <b>17/12 ' 03</b>. Endilega svarið og segið hvað ykkur finnst og hvað þið haldið.

PS: Ég veit ekki hvort einhver annar hafi komið með þessa tilgátu á undan mér. Ég kannaði málið ekki það vel hér á huga.<br><br>Kv,
Hrannar Emm.