Hárið mitt eins og það var/er 1. Þarna var ég 12 eða 13 ára minnir mig, árið 2005. Náttúrulegur litur, klippingarleysa.

2. Hárið á mér rétt eftir fermingu, nýlitað dökkbrúnt. Langar í það aftur.

3. Nokkrum mánuðum eftir fermingu, liturinn var búinn að dofna og orðinn svolítið rauður.

4. og 5. Sumarið eftir fermingu lét ég klippa það stutt, veit ekki alveg hvað ég var að pæla. Liturinn dofnaði næstum alveg og það var bara rauður eftir.

6. Myndin af hárinu á mér eins og það er núna. Ég veit ekkert hvað ég á að gera við það.