Hæ, ég er ekki beint inní þessum tískuheimi en tel mig hafa samt sem áður ágætis smekk á fötum. En ég var að pæla hvar ég gæti fengið flottan jakka? Svona jakkafatajakka en samt ekki of fínan. Svona jakka sem ég get farið á djammið í, og verið bara flottur á því en líka svona jakka sem má nota á jólunum með flottum gallabuxum og skyrtu…?

Ég checkaði í Dressmann áðan, en það eru samt ekki beint jakkar sem ég er að leita af. Kíkti líka í Mótor í Kringlunni og fann ágætis jakka en L stærðin var fín á mig en ermasíddin ekki og M var heldur þröng. Sá líka heví töff jakka í Deres en S var alltof lítið og L aðeins of stórt… þannig ég stend á gati og veit ekkert hvar ég á að leita, allar ábendingar vel þegnar :)
“If you wanna get strong - downright strong- you gotta do the big one, the squat”.