vinkona mín á þessar rosalega flottu diesel buxur, en eini gallin er að þegar það var í tísku að vera í rifnum buxum þá skar hún gat á bæði hnén, kjánin:P
og núna er ég alveg búin að eigna mér buxurnar og alveg dýrka þær. [hún passar ekki lengur í þær] en það eru mjög margir búnir að segja við mig að hætta að ganga í þeim því þær eru svo úr tísku. og ég veit alveg að þær eru úr tísku, og ég vildi að þessi göt væru ekki á buxunum:S
en samt dýrka ég buxurnar, og ég læt skoðanir annars fólks vanalegast ekki hafa áhrif á mínar. en núna eru foreldrar mínir líka farnir að segja að þetta sé alveg rosalega druslulegt og að ég meigi bara ganga í þeim í nokkur skipti enn:/
hvað á ég að gera? þetta eru sko uppáhalds buxurnar “mínar” og ég vil alls ekki hætta að nota þær..