Málið er hvort maður á að vera skoppari eða chocko!!!!!!!
Sumum fer bara alls ekki að vera chocko og svo eru aðrir sem að fer ekki að vera skoppari þannig að það er erfitt, sumir geta verið bæði!! Eins vinkona manns segir kannski “ég myndi vera chocko ef að éf væri þú, þú værir geðveikt sætur” en aðrar kannski “Ekki verða chocko, það fer þér svo illa, þú ert miklu sætari svona”! Og þetta er einmitt það sem að flestir gera, spyrja alltaf alla aðra en pæla ekkert í því hvað þeim sjálfum finnst. Þannig að ef að þið eruð skopparar og eruð að pæla í því að skipta yfir í chocko hættiði þá að spyrja alla aðra hvort að þið ættuð að gera það og ÁKVEÐI ÞAÐ SJÁLF!!!!!!!!! Því svo kannski þegar að þið eruð búin að skipta fattiði að þetta er fáranlegt á ykkur og viljið breyta og þá eruð þið búin að eyða svona 10.000-20.000 kalli í eitthvað sem að þið ætlið að henda, gefa eða eiða plássi í fataskápnum!!!!!!!