Hæ ég var út í Canada um jólin og keypti geðveika brúna diesel húfu fyrir kærastann minn, svo keypti ég geðveikar diesel buxur sem voru samt soldið ódýrar þarna!
Hann var sko geðveikt ánægður með buxurnar enda þegar ég sá þá hugsaði ég bara váá ég verð að kaupa þær, þúst þetta eru ekki svona þröngar diesel heldur svona útvíðar sem eru svona rassabuxur. Húfan var líka geðveikt flott og fór honum geðveikt vel, hann notaði hana í svona c.a. viku og svo sá ég hana ekki meira :(.
Þessar buxur voru líka svona akkúratt eins og ég fýla á strákum, ég keypti reyndar líka bol handa honum en það var bara af götumarkaði sko. Bolurinn var soldið flottur og hann notar hann líka mjög mikið.
Svo hættum við saman og svona, og í dag í skólanum þá fór geðveikt í taugarnar á mér þegar hann var með húfuna og í buxunum og bolnum. Sérstaklega því að núverandi kærastan hans var með húfuna svona 1/2 skóladaginn, og þau lágu saman í sófanum í matsalnum og hún hélt uman um rassinn á honum. Ég varð svo reið að ég rauk út úr matsalnum, næstum því grátandi, ég meina ég eyddi 7000 krónum íslenskum í þessa hfu,buxur og bol!
Hafiði lent í þessu og hvað á ég að gera?
Ég ætlaði sko að hleupa til hans rífa stelpuna frá honum og biðja hann gjörðu svo vel að láta mig fá fötin!
Svo Patti ef þú lest þessa grein láttu mig fá fötin!!

Ég er fúl!! :(
-Það er ljótt fólk sem heldur fram að fegurðin komi innan frá