Það er ofnotaðasta og ógeðslegasta orð í heimi! Maður getur ekki lesið eina helvítis grein hérna án þess að sjá snilld notað svona tíu sinnum! og svo er þetta farið að hefja innreið sína í allar auglýsingar! Grolsch: Tær snilld.. Hrein snilld sem heillar, þessi grillgrind er algjör snilld, snilld snilld snilld snilld snilld snilldsnilldsnslidjlsindlsdlnlni!!!!!

Ég skil ekki hvernig fólk getur ennþá sagt þetta ógeðslega ömurlega ofnotaða kúkaorð og meint það! Eins og núna könnunin á tónlist er “fílarðu sigurrós” eða eitthvað og auðvitað þarf jákvæðasti möguleikinn að vera “já, sigurrós er SNILLD” sem þýddi að ef ég hefði eitthvað jákvætt að segja um þyrfti ég að nota þetta ógeðslega orð.

mér finnst það ekkert mikið hrós ef einhver segir um eitthvað sem ég geri eða segi að það sé snilld. Það hljómar bara falskt í eyrum mínum. Ég veit ekki afhverju ég bara kaupi það ekki.. ég hata ekkert alla sem segja snilld ég er ekki að segja það, það er bara búið að heilaþvo það með því að allir segi það um allt.

En í alvöru ef þið hugsið um það þá líður örugglega sjaldnast meira en klukkutími frá því að maður heyri það eða lesi það allavega einu sinni, finnst ykkur það ekki benda til þess að það sé pínu asnalegt og ofnotað?