Hvað er að gerast?

Það eina sem maður fær stig fyrir þessa dagana er að skrá sig inn.

Ég er búin að vera bara nokkuð duglegur að hugast síðustu vikurnar, samt hef ég BARA fengið stig fyrir hvert sinn sem ég skrái mig inn!

Er þetta svona hjá öllum? Eru allir hér að skrifa ókeypis?! Einhvern veginn þarf ég nú að framfleyta mér og mínum! Því heimta ég að fá mín stig, annars fer ég í verkfall!!!

Er ekki hægt að stofna verkalýðsfélag Hugara(punkturisara) sem kemur í veg fyrir að svona gerist?

Sameinaðir stöndum vér, þar til stigin eru í höndum mér!!




Nei, í alvörunni, er stigakerfið eitthvað bilað?