Vísindi:
Kona fattar brandara. “Fráleitt!” segir háskólaprófessor. “Fyrr trúi ég á geimverur!” segir menntamálaráðherra.

Bíómynd kvöldsins á RUV er tékknesk og heitir, “Trukkalesbíur á Flótta”.

Til sölu:
Fasteign til sölu, á ömurlegum stað, langt úti í rassgati, ósamþykkt 19fm stúdíóíbúð, í mjög niðurgröfnum kjallara. Eignin var áður notuð sem líkbrennsla fyrir leynilegt geðsjúkrahús Bandaríkjahers. Verð: 39 milljónir. Fasteignasalan Klaustur.

Atvinna í boði:
Stúlka óskast til almennra húsverka á heimili hjá sjö útivinnandi dvergum. Meirapróf æskilegt.

Tilkynning:
Vegna árshátíðar starfsmanna, sem haldin verður erlendis, verður bráðamóttaka Landspítalans lokuð næstu helgi. Bent er á dýraspítalann í Víðidal vegna bráðatilfella.

Í dag,
eru nákvæmlega 150 ár síðan herir strumpanna unnu fullnaðarsigur á heimsveldi smjattpattana.

MEST LESIÐ Á NETINU Í DAG:
-Lindsey Lohan hellir bensíni yfir E.T..
-Langlegusjúklingur læknar skurðlækni af sárasótt.
-Fartölva elur húsbónda sínum heilbrigt sveinbarn.
-Greinar um kynlíf mest lesnar á vefritum.
-Sleipiefnanotkun aldraðra aldrei meiri.


Tapað - Fundið
SódaStreamtæki, árgerð 1986 glataðist í Vesturbæ Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags. Hafði mikið tilfinningalegt gildi fyrir eigendur. Góðum fundarlaunum heitið.