Ég hef komið mér í smá klípu.

Þannig er mál með vexti að ég er fastur í gjörsamlega ástarlausu og satt best að segja hálf vandræðalegu sambandi.

Ástæðan fyrir því að sambandið er doldið vandræðalegt er að ég pissa stundum undir þegar ég gisti hjá henni og ég hef alltaf bara skipt um nærbuxur og skvett smá vatni á klofið á henni svo hún haldi að það hafi verið hún sem hafi pissað undir. Það hefur gengið frekar vel þar sem henni líður bara frekar illa en ekki mér, en ég reyni samt að láta henni líða vel með því að segja þetta vera smá mál og skipti engu… en samt þegar mér líður illa, t.d. um daginn þegar ég missti samloku sem ég var búinn að vera gera í svona korter í gólfið, þá kalla ég hana stundum pissudúkku sem virðist kalla þessar slæmu tilfinningar upp hjá henni aftur.

Ekki misskilja þetta sem einhverja illgirni, þetta er bara til að láta mér líða betur.

Síðan er það líka að ég er löngu hættur að vera ástfanginn af henni. Eina ástæðan fyrir því að ég er enþá með henni er að hún er dóttir yfirmanns míns, því er ég hræddur um að hann reki mig ef ég hætti með henni þar sem hún mun örugglega ljúga einhverju uppá mig (hún er doldið þannig, þessi lygatýpa).

Hún hefur t.d. logið um hluti sem ekkert vit er í og tilganglaust að ljúga um.

Smá dæmi: Um daginn var hún að kaupa sér fartölvu , þegar ég hringdi og spurði hana hvernig tölvu hún hafi ákveðið að kaupa sér sagðist hún hafa keypt sér Dell tölvu, síðan seinna um daginn kom ég heim og þá var Packard Bell talva á borðinu. Vitaskuld reiddist ég strax og spurðu hvers vegna í ósköpunum hún hafi verið að ljúga svona að mér, þá segist hún hafa „ruglast“. Já já ekkert mál hún bara „ruglaðist“, alltaf jafn saklaus. Ég skil ekki alveg hugsunina á bakvið þessa lygi.

Ég gæti setið hérna og nefnt tugir svipaðra lyga í viðbót.

Svo spyr ég.
hvað finnst ykkur að ég eigi að gera. Á ég að vera áfram með henni og reyna láta þetta reddast eða slíta þessu og hætta á að vera rekinn?