ATH -þessi þráður er tileinkaður þeim sem koma með skítakomment á annað fólk hérna og telja það það sé bara allt í lagi með það.

Nei núna get ég þetta ekki lengur. Mér blöskrar. Hvar er að ykkur? Finnst ykkur bara allt í lagi að koma með skítakomment á annað fólk hérna á huga?

Ég sá á kveðjukorkinum hans Soldat að fólk er að reyna að réttlæta þetta með “Þetta er Internetið! Það á ekki að taka neitt alvarlega þar!”

Það er raunverulegt fólk bak við tölvuskjáina. Það er í raun enginn munur á því að tala við fólk hérna á huga og ,,face to face“. Eini munurinn er sjá að við erum öll falin bak við tölvuskjá og mörg undir nafnleynd. Internetið er ekkert frekar staður til að tala illa um aðra og leggja það í einelti. Það er ekkert betra að gera það á netinu heldur en í ”real life“. Og í rauninni er svo villandi að kalla lífið manns fyrir utan tölvuskjáinn ”real life" því þetta er líka raunverulegt líf fólks. Þegar það er hérna á huga að segja sínar skoðannir hérna osfr.

Það hefur nú þegar strákur framið sjálfsmorð eftir að hann bað seinast um hjálp hérna á huga. Ég er ekki að segja að hann hafi gert það vegna allra þessa hræðilega athugasemnda sem hann fékk, en það spilar inn í. Við vorum seinasta fólkið sem hann bað um hjálp og hvað fékk hann, nánast ekkert nemsa skít?

Í alvöru, skiptir það ykkur engu máli hvernig þið komið fram við aðra? Eruð þið virkilega það óþroskuð? Eða líður ykkur virkilega það illa?

Það er fullt af fólki hérna sem er almennilegt, kann að rökræða og virða skoðannir annarra. En það eru allt of margir sem leggja aðra í einelti hérna og kalla aðra öllum illum nöfnum. Stundum að ástæðislausu, stundum þegar einhver hefur sent inn mynd af sér og stundum þegar fólk er ósammála einhverjum öðrum.

Ég virði ykkur hin sem virðið annað fólk og gerir þetta ekki. En mér finnst að gjörsamlega óásættanlegt hvað það eru margir sem láta svona.

Hvað þarf að gerast til þetta hætti? Annað sjálfsmorð. Eða er einfaldlega ekki hægt að halda út svona vefsíðu og gera þá kröfur an fólk virði annað fólk og særi það ekki?



Bætt við 5. maí 2009 - 14:13
Ætla að laga eitt hérna. Þessi setning á að vera svona:

Hvað þarf að gerast til þess að þetta hætti? Annað sjálfsmorð?

:)
An eye for an eye makes the whole world blind