Það er einhver ógeðslega leiðinlegur gaur sem er fluttur í næsta hús við mig. Hann á ógeðslega leiðinlegann hund sem vekur mig á hverjum morgni og svo er hann sjálfur algjörlega þroskaheftur. Áðan var ég úti að reykja rettu og taka myndir og svo kallar hann og segir: “Hey strákur! getur þú hjálpað mér aðeins?”. Ég ákveð að hjálpa honum og spyr hann hvað vandamálið sé. Þá segir hann að hann þurfi hjálp við að komast í bílinn sinn. Ég svara honum blíðlega: “Jaa þú getur nú gert það sjálfur” og þá fer hann að öskra á mig og vera með stæla og ég bara fer og segi: “hey ég ætla ekkert að hjálpa þér ef þú ert með svona dónaskap við mig minn kæri” og þá segir hann við mig: “Þú berð bara enga virðingu fyrir neinu. Þú ert alveg eins og Hitler”. Ég lét það reyndar eiga sig og fór inní húsið mitt. DJÖFULL HATA ÉG ÞENNAN GEÐSJÚKA LEIÐINLEGA MANN!!!