Ég var í mínu mesta sakleysi að taka strætó heim úr skólanum um 9:30 í morgun. Þannig að, venjulega rútínan: ég bíð eftir strætó, blablabla, þegar ég kem inn í vagninn er hann stútfullur af einhverjum 15-16 ára stelpum, það voru BARA unglingagjelgur í vagninum. Svo keyrir hann áfram, stoppar á einhverjum stöðvum, þá koma fleiri stelpur inn. Svo keyrir hann aðeins lengra og inn í mitt hverfi, þá byrja nokkrar að tínast úr.

Ég held nefninlega að þetta hafi ekki verið nein hópferð því þær áttu alls ekki nein samskipti við hvora aðra, bara einhverjir tveir hópar/pör þarna, og þær dreifðu sér jafnt up vagninn.

Þetta var creepy sko. Það er pretty much pointið í þræðinum.

Bætt við 27. nóvember 2008 - 17:40
Og þegar ég segi að það hafi bara verið unglingagelgjur þarna, þá á ég ekki við að það hafi verið einhverjar 5 stelpur þarna, þær voru örugglega 15, ef ekki meira.