Ég ætla rétt að vona að tröllin sem eru að tjá sig á þræðinum hérna fyrir neðan sleppa því að mæta á morgun. Helst sleppi því að anda.

Lang flestir hérna á huga.is vita einu sinni ekki hverju verið er að mótmæla. Margir sem segja að það ætti að mæta með móloktóvkokteila á morgun. Til hvers? til þess að skaða saklaust fólk?

Væri frábært fyrir efnahaginn ef óeirðir myndu brjótast út. Alheimurinn myndi þá sjá okkur í alvöru sem vanþróað afríkuland.

Aðrir vitgrannir einstaklingar segja að við ættum að taka okkur Frakkana til fyrirmyndar vegna byltingunni þar… Greinilegt að fólk hefur ekki lesið sögubækunar sínar nógu vel hafa ekki heyrt um hugtakið:„byltingin étur börnin sín"
Svo ekki sé talað um allt saklausa fólkið sem var tekið af lífi óvart.

Bylting er ekki það sama og mótmæli. Vissulega kunna frakkar að mótmæla og þegar þeir mótmæla þá gera þeir það friðsamlega. Eins og þegar bensín verðið hækkað mikið, þá lögðust þeir á göturnar.


Ég hvet hinsvegar alla með ráði til þess að mæta til þess að sýna samstöðu. Lögreglan hefur ekkert gert af sér, þeir eru bara að vinna vinnuna sína, kreppan hefur alveg sömu áhrif á þá. Það hefur sýnt sig í gegnum mannkynssöguna að kreppur eru ekki leystar með óreirðum heldur samtöðu.


Ég segi það aftur, bylting er ekki það sama og mótmæli.
Það fólk sem vill byltingu núna hefur greinilega ekki hugmynd um hvað það myndi gera fyrir landið, sem sýnir vitsmuna skort. Það að hafa vitsmunaskert fífl við völd myndi þá algerlega leggja landið í rúst.

Alvöru Íslendingar leggjast sitt af mörkum þegar á reynir, en reyna ekki gera illt verra.


Tl;DR: Bylting er ekki það sama og mótmæli, ofbeldisfólk hættiða að anda.