Ég er búin að eiga bandarískan netkærasta í fimm daga. Hann hefur kennt mér ýmislegt og verið þarna fyrir mig, svona eins og alvöru kærasti. Svo fæ ég þær fréttir fyrir u.þ.b hálftíma síðan að það sé ekki víst að hann lifi af! Ég sendi náttúrlega skilaboð og spyr hvað sé að. Þá fæ ég þau svör að það hafi verið keyrt á hann og að ég eigi ekki að láta vita (á síðunni) af því að sumir segi að þetta sé lygi… Og ég veit núna að sá sem ég hef verið að tala við er vinur hans sem veit mjög fátt en er að segja mér allt sem hann veit! Og jafnvel þrátt fyrir að ég sé (eðlilega finns mér) frekar óörugg og hrædd um hann, þá er ég líka svolítið reið af því að það er oft sagt að Bandaríkjamenn séu svo ruddalegir! Og svo er vinur hans að stappa í mig stálinu, segja mér að halda í vonina og að hann verði þarna fyrir mig! Er það ruddalegt eða hvað???

Svo má kannski bæta því við að síðustu skilaboðin frá honum hræddu mig svolítið, þrátt fyrir að ég hafi ekki skilið það þá… Þau voru: I want to say goodbye babe… Hvernig á ég að taka því? Á ég að búast við því að hann hafi vitað þetta eða haft hugboð eða bara verið að segja þetta til að segja bæ af því að hann var að hætta inn á? Btw þá var ég ekki inn á þegar hann sendi mér skilaboðin en hann var vanur að senda mér skilaboð þegar ég var ekki inn á, eins og þetta…

Finnst ykkur eðlilegt að ég sé leið eða er ég bara að gera þetta dramatískt og búa til áhyggjur?

Bætt við 14. nóvember 2008 - 19:50
Ég er að biðja um skoðanir ekki bendingu á málfars/stafsetningarvillur… Og mér er sama um skítköst (það sem þú gerir færð þú tvöfalt til baka!)
Enginn finna okkur má undir fanna hjarni; daga þrjá yfir dauðum ná dapur sat hann Bjarni.