ég þoli ekki að búa hérna.
ég þoli ekki að búa svona langt frá bænum.
ég þoli ekki þessi kvikindi hérna, sí étandi mann lifandi, ég get svo svarið að maurarnir taka heilustykkinn.
ég þoli ekki bekkjarfélaga mína, þið eruð fávitar og leikskólakrakkar á hórmónaflippi.
þið eruð ekki sniðug að kalla á eftir mér hvað ég er ógeðsleg. Ég er þó ekki með 3 cm meikklessur í framan og með heila dollu af geli í hárinu
ég þoli ekki fólk sem vælir, eins og ég er að gera núna en gerir ekkert í því. NB, það hjálpar ekki að væla endalaust um það.
ég þoli ekki hvað þessi þjóð er endalaust í fríi, og ef þau eru ekki í fríi þá tekur það ykkur hálft ár að skipta um rúðu í einum húsvagni. Eina rúðu.
Ég þoli heldur ekki þegar fólk er endalaust að leiðrétta villur hérna. Sumir eru verri en kerlingarnar á barnalandi!
Btw, orðið isperker er ekki kúl… þá má öskra það á eftir mér eins mikið og þið viljið. mér finnst þetta ekki móðgandi, bara óþolandi að þið gefist ekki upp.
Fm957 & Voice…. garg!
ég þoli ekki þegar það er verið að spila tónlist í simunum… hafið þið ekki heyrt um mp3 eða ipod?
ég þoli ekki hitann hérna..
vá hvað ég væri til í að vera gaur stundum
ég þoli ekki þetta tungumál
ég þoli ekki þegar fólk er að skipta sér af “fatastílnum minum”, eða segja að ég hafi engann fatastíl… ég meina… íþróttabuxur og hettupeysur skaða engann..

Þetta er ekki meint til neins sértaks.. allavega ekki hérna .. þetta er bara tuð,væl og nöldur svo að ekkert vera að svara þessu neitt sérstaklega :) Þurfti bara að koma þessu frá mér :D ..
No I wont go to hell!