Íslendingar, hah! Hvílíkir aumingjar
Jæja, ég er orðinn full-saddur á íslendingum. Bitrasta dónalegasta, sjálfselskasta og aumasta(þá meina eg ekki líkamlega) fólk jarðar. Ég tek dæmi sem hafa gerst.
Fordómafullir íslendingar

1 dæmi.
Ég er 15 ára unglingur, á röltinu eitthvað um kl 22 um sumarið, kannski í hettupeysu. Neinei, ég má ekki labba um án þessa að fólk heldur að ég sé að fara að skemma eignir með graffi og taggi, og já ég er sennilega dópisti og drykkjumaður i augum þeirra.

2. Dæmi
ég stóð i kirkjugarði Á STUTTBUXUM og í bol með skójárni sem ég fann, kemur ekki kona heldur að ég sé að skemma legsteinana með skójárninu og hringir i lögguna.

Dónalegir íslendingar

ég vann á kassa einu sinni í bónus í þó nokkurn tíma, það er ótrúlegt hvað íslendingar geta verið dónalegir

1.Dæmi
það vantaði strikamerkið á eina vöru, og það var brjáluð röð. ég sagði honum frá vandamálinu og þetta er það sem hann sagði, hann var um 30-40 ára

Ég:það vantar strikamerkið
maður: reifstu það?
ég: nei það vantar bara, það gæti hafa rifnað áður
maður: nei þú reist og skemmdir vöruna, ég vill fá hana frítt
ég: afsakið, ég get ekki gefið þér vöruna þótt það vanti strikamerki
maður: ég er ekki að fara að borga fyrir þetta (tók vöruna og stakk i pokann)
ég hugsaði(vá ótrúlegt)
ég hætti bara, því verslunarstjórinn var soldið klikkaður

Sjálfselskir Íslendingar

ég er að tala um alla bílana á gangstéttum, ótrúlegt að íslendingar geri þetta, á risastórum jeppum, afþví þeir nenna ekki að labba smá spöl

Dæmi 1
ég er að hjóla og þarf að fara sífellt út á götu vegna bílanna á gangstéttinni, kemur maður sem er að fara að leggja uppá gangstéttina og ég stoppa og fer fyrir “stæðið” hans á gangstéttinni, hann bíbbar og bíbbar, að lokum fer hann út og biður mig um að færa mig, ég svara: biddu, þú ert vitlausu megin við götuna, þú mátt leggja þarna hinumegin. Hann espir sig og segir mer að drulla mér af gangstættinni, ég fer að lokum, nenni þessu ekki.

Íslendinga Aumingjar

ef það er til ein þjóð af aumingum þá er það ísland,

1. Dæmi
ríkisstjórnin góða, hún er æði og alltaf hefur verið right? við kjósum og kjósum á hverjum 4 árum aðra flokka í ríkisstjórn, en samt endum við upp með sömu aumingjana, þeir lofa endalausum hlutum og standast við mestalagi eitt af þeim

2. dæmi
íslendingar við tölvur eru líka ótrúlegir, þið skítkastið yfir alla og espið ykkur rosalega á minnstu hlutum. Eins-og ég var a deilt.net og þar var svona lag sem einhverjir piltar höfðu verið að brugga og strax kom eitthvað, vá þetta sökkaði, hættið að gera tónlist, ógeð.. og fleira
þetta gildir líka með huga.is og flestar íslenskar síður, ég meina, valdir hugararnir ýttu einum yfir brúnina um daginn, er þetta ekki orðið gott, á það ekki að vekja ykkur? hættið þessu og virðið skoðanir og verk annarra, finnið skinsamlega leið til að viðkomandi getur bætt sig án þess að meina eitthvað illt. það eru manneskjur bakvið þessar tölvur.


Endilega skítkastið yfir þessa grein, bjóst við því…