Mig vantar hjálp nokkra góðhjartaðra hugara!

Málið er að besta vinkona mín er að fara úr landinu og til Danmerkur og verður í burtu í þrjár vikur.
Og mig langaði að gefa henni flotta kveðjugjöf :D
Ég ætlaði að fá ykkur hugara sem eiga síma eða kunna að nota www.vodafone.is til þess að senda henni fallegt kveðju sms :D

Þetta gæti hljómað eitthvað eins og :

Ég ætlaði bara að oska þér
frábæra utanlandsferð og láta
þig vita að ég (nafnið þitt)
mun sakna þín :D

Kv, (nafnið þitt) með bestu
kveðjum Gerald.

Ef þið getið væri það bara frábært ef þið getið komið með eitthvað frumlegra og ennþá sætara :D
Þetta er fyrir ofan er bara hugmynd um hvernig þetta gæti hljómað.

Já, ég ætla ekki að setja símanumerið hennar í korkinn heldur getiði bara sent mér PM og ég skal senda ykkur til baka.

Og ég gleymdi að minnast á, til að fullkomna þetta væri það langbest ef öll sms-in gætu farið samtímis 12 leitið á morgun. Helst á slaginu (:


Ég þakka ykkur huga.is samfélaginu fáranlega mikið við að hjálpa mér við þessa kveðjugjöf :D ég kann að meta hvert einasta sms sem fer.

Kv Bigmothe
Lol, þú last þetta.