Vill svo leiðinlega til að ég bý í næsta húsi við eitt af hinum þekktu jólaskreyttu húsum hér í borg og þetta andskotans drasl er að gera mig brjálaðan. Lýsir alveg inní húsið hjá mér, María Mey syngur jólalög en Rúdolf með rauða nefið baular, alveg gjörsamlega óþolandi að hafa þetta við hliðina á sér, furðulegt hvernig miðaldra karlmenn fyllast skyndilega einhverju jólaljósabrjálæði. Þetta hús blikkar allt, syngur og baular og ég er að klikkast. Svo er líka alltaf fólk að koma inní götuna og skoða og stöðugt streymi.

Vill einhver hjálpa mér í nótt að rífa allt þetta drasl niður og henda því í sjóinn.