Kæra skólasystkini og ökumaður græns Yaris: Fari svo að þú lærir ekki að leggja eins og hugsandi manneskja með a.m.k. tveggja tölu greindarvísitölu, megir þú farast í hræðilegu bílslysi og taka þennan sataníska bíl með þér til heljar.
“Hvað gerði ég?”, hugsarðu örugglega með þér á meðan þú rennir yfir þennan texta. Jú, mjög einfalt: Klukkan 11:20 rölti ég, prúður, góðlátur drengur -guð minn góður, ég mætti meira að segja snemma um morguninn til að ná alveg örugglega stæði - út í bíl til að fá mér að éta, bara til að komast svo að því að einhver tussa var búin að leggja ólöglega við hliðina á öðrum ólöglega lögðum bíl og beint fyrir aftan minn. Þetta Þýddi auðvitað að ég hafði ca. 23 mm til að koma mér úr stæðinu.
Svo þarna var ég í heila viku að reyna að troða mér út úr helvítis stæðinu. bakkgír, bakka, stopp. Fyrsti gír, áfram, stopp. Bakkgír, bakka, stopp. Fyrsti gír, áfram, stopp. Bakkgír, bakka, stopp. fyrsti gír, áfram stopp. Bakkgír, bakka, stopp. Fyrsti gír áfram stopp.
Ég endurtek þetta svona oft aðeins til að gefa þér smá smakk af þeim leiðindum sem þessu helvíti fylgdi.
Ég kaus að lykla ekki bílinn þinn eingöngu vegna þess að það hefði verið sannað sem skemmdarverk. En ég sver, hefði ég ekki verið á lánsbíl þá hefði ég bakkað á fullum hraða í gegnum bílinn þinn og sett svo upp undrunarsvip “Ha, á þetta að vera hérna?”.

Og hvaða helvítis heilasýkta ógeð er það sem mætir í skólann á vespu og leggur í bílastæði?