Ég bara þoli ekki þegar fólk gagnrýnir tónlistina sem ég hlusta á!!! ókei, ég skil það alveg að fólki líki ekkert endilega vel við tónlistina sem ég hlusta á, en það þarf ekki að vera endalaust vælandi yfir því.
Ég hlusta á allt frá Nargaroth yfir í írska folktónlist. Metalhausarnir segja: oj, the Dubliners er ömurlegt band! Þá koma gelgjurnar og segja: OMG, ertu að hlusta á Necrophagist(sem þær venjulega bera vitlaust fram)? Indie fólkið segir: Æji AC/DC eru svo ömurlegir. Og restin gerir veður útaf einhverju öðru.
Afhverju er bannað að hafa fjölbreyttan tónlistarsmekk?
Allir hlutir eru haldnir heimþrá til jarðarinnar og þess vegna falla þeir þangað þegar tækifæri gefst.