VIÐVÖRIN!!! ALLS ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA, SÝNIR MIKLA GRIMD OG MISÞYRMINGU Á DÝRUM


Ég rakast á myndband á YouTube í morgun um menn sem berja þvottabirni í hausin með spítu og slá þá í jörðina. Svo ef þetta er ekki nógu hræðilegt þá eru þeir hengdir upp á skottinu og fláðir meðan þeir sprikla um af sársauka, Dýrið er enn á lífi þegar öllu er svo lokið. Skinnlaust og blæðandi út.

Ég hef aldrei á ævini séð annað eins viðbjóð, Þetta er svo hræðilegt myndband að orð fá því varla lýst. Hvernig getur fólk sem gerir svona sofið á næturnar?

Þessi dýr deyja svona fyrir pening og tísku, er það virkilega þess virði?

Feldurinn er svo seldur til Ameríku og Evrópu svo fólk geti keypt sér rándýran loðfeld og fjármagnað þessa hrikalegu meðferð á saklausum dýrum.

Ég ætla að linka myndbandið hérna en ég vara ykkur við að horfa á það,

Og ég segi aftur að þetta er alls ekki fyrir viðkvæma

http://www.youtube.com/watch?v=tYaj-t586ec