Ég er svo reið og sár!!! :'(

Það var brotist inn til systur pabba núna síðustu nótt, hún býr útí sveit á mjög afskektum stað og það var enginn heima þar sem maðurinn hennar og krakkar voru í fríi og hún þurfti að vinna lengi þetta kvöld og ákvað að gista í bænum sem hún vinnur í.
Allt verðmætt var tekið, allt sem mögulega var hægt að stela.

Meðal annars voru þar erfðagripir, skartgripa safn ömmu minnar sem hafði mikla þíðingu fyrir hana og líka mig, ég sit hérna hálf volandi og þakka fyrir þá skartgripi sem ég hafði þegar fengið til minningar um hana. Einnig var tekið teskeiðasafn sem hafði mikla þíðingu fyrir frænku mína því það var einni komið frá ömmu. Að ég tali ekki um ALLT sem kostaði einhvern pening í húsinu….

Lyfjaskápurinn var tæmdur….

Hvað fær fólk til að gera svona??? :SS Eitt af því sem löggan sagði þegar hún talaði við þá “þú ert heppin að hafa ekki verið heima í nótt, það er ekkert víst það hefði endað vel fyrir þig að vera ein heima þá”