Djöfull þoli ég ekki systir mína!!
Ég ætla hvarta undan ýmsu og til að byrja með þá ætla ég að segja ég hata hana! (ég er 15 ára og hún er 21)

Sko hvað sem ég geri, hreyfi mig, anda, bara hvað sem er þá þarf hún alltaf að setja útá það sem ég geri. Ef ég er í kannski einhverjum fötum þá segir hún t.d. ‘'afhverju ertu í þessum fötum þetta eru ljót föt’' mér finnst þetta flott föt og hún er með allt öðruvísi fatasmekk en ég… hún er fucking hippi! svo ef sit bara og horfi kannski á sjónvarpið og hún situr í stól hliðiná mér þá heyrist allt í einu í henni ‘'ekki anda svona hátt!’' vá má ég ekki anda í friði!!! hún er sko alltaf pirruð, hvað sem það er þá er hún alltaf pirruð við öll tilvik.

hún er í herbergi við hliðiná mínu og ég má ekki einu sinni tala í síman og þá kemur hún yfir og kvartar og kveinar yfir því að ég tali of hátt. Ég tala bara á venjulegum nótum hún er bara með OFUR heyrn.

Ég er mikið inní herbergi og stundum eyði ég heilu dögunum bara inní herbergi. Mér finnst bara best að vera einn að dunda mér en NEEEI fer hún ekki að kvarta og segir að ég eigi ekki að vera inní herbergi því það sé óholt og hún hefur gengið í gegnum þetta og bla bla bla… sko hún hefur drukkið og hún reykir og hún hefur dópað og verið í vondum félagskap og farið á voga og allt heila klabbið… EKKI ÉG!! og ég mun aldrei á æfinni drekka eða gera neitt svona því ég hef engan áhuga á því og ég er bara í fínasta félagskap. Þó að hún hafi lent í þessu er ekki þar með sagt að ég muni lenda í þessu. Mér finnst bara best að vera einn. Punktur.

Hún getur aldrei látið mig vera og ég er farin að forðast hana eftir bestu getu. Ég fer stundum ekki framm að borða bara afþví hún er heima.

Svo að ef einhver veit símanúmerið hjá góðri Hitman service þá endilega láta mig vita því ég get ekki þolað hana lengur!

Varð að fá útrás!
Takk fyrir mig
VikingMan

AAAAAAAAAAAAAAAARRRRRRRRGGGGGGHHHHHHHH!!!!!!!!
So does your face!