Ungur drengur varð fyrir fólskulegri árás í vinnu sinni í Kópavogi um hádegisbilið í dag. Árásaseggirnrir lögðu á flótta en er ákaft leitað af meindýraeyði.

Fórnarlambið var stungið ótalsinnum bæði í andlit og skrokk og er alvarlega slasað. Lögregla verst frétta af málinu en sagði í yfirlýsingu sinni til fjölmiðla að málið þyki afar algengt hérlendis sem erlendis.

Greinagóð lýsing náðist af árásaseggjunum en þeir eru gulir og svartir á stærð við fingurnugl og gefa mikið suð frá sér. Þeir ferðast gjarnann í stórum hópum og verja sig með kjafti og klóm sé eitthvað gert í garð þeirra.

Já helv. geitungarnir eru byrjaðir að stinga. Ógeðslegu fokkings kvikindu útum allt.
I got sex dollar bill :)