Afhverju í fjandanum þurfa endilega hrossaflugur að vera til !!

Í morgun vakti litli bróðir minn mig !! Með því að segja mér að það væri stór kónguló á veggnum og ég alveg ohhh okay..svo var þetta hrossafluga og ég stökk á fætur og ég og litli bróðir minn í panikki !! Ég prufaði að spreyja einhverju á hana það virkaði ekki..svo kom ég með glas og ætlaði að innikróa hana svo dró ég svona glasið niður og þá sá ég fæturnar á henni og missti glasið og hljóp í burtu *chicken i know*

Svo tók ég andrés önd syrpu og henti í hana ! Og það versta við það er að ég veit ekkert hvar þessi hrossafluga er hún er ekki á syrpunni og ekki heldur úti glugga eða á golfinu !!! Og það er lokaður gluggi o______0 !!!

En já hrossaflugur eru ógeðslegustu pöddur í heimi og líka geitungar og býflugur !!

Ég er líka mesta chicken í heimi !! ég er hrædd við öll dýr nema suma hunda !!! >_< böggandi fóbía!!!

En já ég vildi endilega “shera” þessu með ykkur lifið heil !!
Tell your boyfriend if he says he's got beef,