Jæja, einn að hætta vegna bílamellna og FM hnakka.

Þá spyr ég nú bara, hvað finnst ykkur að því að fólk sé hnakki?

Ég er hnakki, hef þó verið í því að hlusta bara á Death Metal og fara á hardcore tónleika og svona en fólk breytist.

Ef svar þitt er:
Vegna þess að þeir hlusta á leiðinlega tónlist
Þá hef ég þetta að segja við ykkur: Smekkur fólks er mismunandi, þó að þú fílir þessa tónlist ekki þá getur vel verið að aðrir geri það og engin ástæða fyrir þig að dissa hnakka þar sem að ég er ekki að sjá mikið af hnökkum vera að dissa metalhausa.

Nú, ef að svarið er:
Vegna þess að þeir klæða sig asnalega/hommalega
Núnú, mér finnst hnakkar bara klæða sig snyrtilega miðað við flestar fatastefnur. Ekki það að mér finnist aðrir klæða sig eitthvað druslulega. Svo er þetta smekkur, hvort maður vill klæða sig í tættar gallabuxur eða kúaleður.

Jah, ef að svarið er:
Vegna þess að þeir eru með allt of mikið gel í hárinu og/eða eru með asnalegar klippingar
Æi, vertu ekki svona hlandskoti barnaleg/ur! Það eru allir með mismunandi hár svo að þú getur ekki verið að dissa hárið á fólki, bara létt comment en ekki bara að hata viðkomandi vegna þess að hann er með strípur eða þannig.

Vegna þess að þeir eyða meiri hluta af lífi sínu í ljósabekkjum
Ekki allir! Sumum finnst þetta flott, eins og þér finnst kannski flott að vera með bólur framan í þér. Alveg eins bara.

Já, ef þú hatar hnakka viltu þá vinsamlegast koma með ástæðu?

Bara spyr sko, og ef ástæðan er eitthvað af þessu fyrir ofan viltu vinsamlegast sleppa því að svara.