- Ég er ein í hóp með tveimur strákum í unglingavinnunni og þeir tala bara um Box, bíla og stelpur… sem væri allt í lagi þannig séð ef ég þyrfti ekki að hlusta á þá.. en ipodinn minn tók upp á því að deyja á sunnudag… Týpískt.

- Fjölskyldan mín eru mestu slúðurdruslur sem þú kemur til með að hitta!
Ég mætti ekki í vinnuna í gær vegna þess að ég fékk fucking gubbupest og ein frænka mín kom í heimsókn um hádegið í gær, sá mig heima og vegna þess að ég ældi ekkert á þessum 20mín sem hún var heima að þá hringdi hún í öll!! systkini mömmu mínar “til að tilkynna þeim hvað krakkinn væri latur”

Þetta endaði þannig að tvær frænkur mínar, amma mín og besta vinkona mín(frænka mín hringdi reyndar ekki í hana) Héltu allar reiðlestur yfir mér fyrir að hafa ekki mætt í vinnuna án þess að jafnvel spyrja afhverju! ég hefði ekki mætt í vinnuna.(Þetta er ekki í fyrsta sinn sem eitthvað þessu líkt gerist)


- Ipodinn minn er bilaður

- Gaurinn fyrir neðan mig á vin sem kemur alltaf að sækja hann á morgnanna, Vinurinn flautar alltaf svo hátt að allir í húsinu vakna… Það er ekki gaman að vakna klukkan 7 á sunnudags morgni

- Ég er ekki ennþá búin að fá svar frá menntaskólanum sem ég valdi.


Og þá held ég að ég sé uppiskropa með hluti sem pirra mig nákvæmlega núna:P
Ég er ekki að dissa þig… Hálfviti!