Djöfull er Mike Pollock svalur ennþá.

Flott hjá Bubba þósvo að hann hafi stundum ekki munað textana eða rétt virkað falskur, hann má það þar sem hann er Bubbi, hinsvegar fannst mér hann Snorri Idol klúðra laginu sem hann fékk algjörlega.

Ég er fúll yfir einum öðrum hlut fyrir utan að Snorri Idol var ekki að gera góða hluti og það er HVAR VAR MEGAS???

Ég sem hélt að það væri garanterað að Megas kæmi þarna, nei.

Þá er það spurning náttúrulega hvort að hann hafi verið í formi eðurei, reyndar finnst mér Megas ekkert virðast vera í formi, en samt þetta eru afmælistónleikar svo Megas hefði átt að láta sjá sig, nema náttúrulega að Bubbi hafi ekki viljað sjá hann.



Í lokin hvor Pollock bræðra fannst þér vera svalari?

Mér prívat og persónulega fannst Mike svalari.