Ég get ekki orða bundist!! Ég verð að hella úr skálum reiði minnar einhverstaðar, þannig er að ég var að horfa á kosningasjónvarp NFS áðan og það voru fyrstu niðurstöður úr kosningunum, eftir að þær höfðu verið kynntar tók fréttmaðurinn viðtal við bæjarstjórann, Hann byrjaði á því alvarlegur í bragði að votta fjölskyldum sjómannana sem brunnu inni á akureyrinni EA fyrir hönd allra flokka. Hann var varla búinn að sleppa orðinu þegar fréttmaðurinn sagði, “já en hvað með meirihlutan?”
Svona hagar maður sér ekki!! Þessi fréttmaður ætti að fá ávítur!! Ég skora á fólk að segja Skamm!!