Ég get varla hamið gremju mínu yfir hinum nýja kolsýrða svaladrykk Pepsi MAX “Gold”.
Ég er mikill áhugamaður um pepsi max og ég fæ fátt betra en kaldan maxxara þegar þorstinn sækir að.
Af þessari ástæðu gladdist ég harla mjög þegar ég leit augum þetta nýja afbrigði uppáhalds gosdrykkjar míns.
Það sem ég fékk hinsvegar var eitthvað sem ég fæ best lýst með orðunum: “Goslaust Pepsi MAX með kanilbragði”. Hreinn viðbjóður.

Ég ræð ykkur því frá því - Hugarar góðir - Að eyða peningum ykkar í þetta ógeð og kaupa ykkur frekar hreint og gott Pepsi Max.