Já strákurinn sem tíndist hefur verið fundinn. Pabbi sem hefur verið að leita undarfarna daga hringdi í mig og sagði mér það. Pétur var náfrændi minn og ég býst við að fara í jarðarför bráðum. Það er hrikalegt þegar svona nokkuð gerist og það við 17 ára dreng. Maður gerir sér kannski ekki grein fyrir því fyrr en þetta gerist við einhvern nákomin manni. Ég fór í kirkjuna um daginn í bænastund fyrir hann og sá foreldra hans og bræður grátandi og mér leið svo hrikalega. Ég vildi fá að fara að leyta með pabba en hann neitaði. Ég ætla allavega hér með að senda fjölskylda hans góðar hugsanir og vona að þið gerið það sama…