Ég er að fara í stærðfræðipróf á morgun og sama hvað ég læri mikið undir það, ég skil samt ekki neitt. Ég er með tárin í augunum og grátstafinn í kverkunum, ég vil ekki falla í áfanganum en bara get ekki að því gert.

Einnig vil ég nöldra yfir því hve gríðarlega mikið er af heimsku fólki á Huga. Ég ætla ekki að nefna nein nöfn (enda man ég engin nöfn) en sumir hérna ættu bara að hætta að tjá sig. Ekkert persónulegt, sumu fólki er ætlað að deila visku sinni með heiminum (ég er þar á meðal) en öðru fólki ekki.