Oooooohhh ég hata Latabæ. Þetta er svo leiðinlegt og asnalegt rusl, ég skil ekki hvernig þessum aulum sem búa þetta til datt í hug að búa þennan horbjóð til. Það er eins og það sé ekki hægt að labba eða hlaupa venjulega í Latabæ, það þurfa alltaf allir að hoppa eitthvað, taka handahlaup eða taka heljarstökk eitthvað. Síðan þessi andskotans “Íþróttaálfur”. Afhverju getur hann ekki bara labbað eða hlaupið í staðinn fyrir að hoppa útum allt? Eins og til dæmis ef hann stæði 5 metra frá stól sem hann ætlaði að setjast í, labbar hann ekki, hann annaðhvort tekur, handahlaup, heljarstökk eða gengur á höndum þangað. Og síðan skil ég ekki alveg hvernig hann getur stokkið niður úr þessari blöðru sinni 50 metra niður á jörðina, Hann ætti allavega að fótbrotna eða eitthvað. Og afhverju getur “Glanni Glæpur” ekki bara skotið “Íþróttaálfinn” í hausinn til að losna við hann?

Nú er ég búinn að nöldra smá og ætla að halda áfram að éta páskaeggið mitt.