Ohh, þessi þáttur er mesta klisjukennda vitleisa sem ég hef séð á ævinni minni. Þetta er ófrumlegt. Það kemur leiðinlegt fólk í heimsókn. Þau tala um leiðinlega hluti. Þau hlæja að öllu. Hlutir sem eru alls ekkert fyndnir. Þau eru ekkert svona ofurhress. Ég er pirraður. Ég veeeeit, ég get alveg slökkt á sjónvarpinu og sleppt því að nöldra en mér er alveg sama. Ég geri það samt.
“Life is what happens to you while you're busy making other plans” - John Lennon