Jesús kristur, núna er ég virkilega pirraður!

Ég vakna við það að gemsinn minn hringir, og ég ætla að svara. En kemst svo að því að gemsinn er inní eldhúsi!
Svo ég fer aftur að sofa….
Svona hálftíma seinna þá hringir síminn aftur og ég vakna við það líka!
Ég hleyp fram til að svara og ég teygi mig eftir gemsanum og þá hættir hann að hringja!
Og ég verð pirraður. Þannig að ég ætla að “aflæsa” símanum og ýti þá á “C” takkann.
En þá hefur síminn greinilega ekki verið læstur og ég deleta einhverju sms-i sem ég hafði fengið!
Ég hef ekki hugmynd hver sendi það eða hvað var í því!
Og nú er ég að deeeyjja úr forvitni!

Líka það að um nóttina hafi mig dreymt að ég fékk heilan páskaeggja kassa og mikið af bland í poka og svo vaknaði ég við gemsann, og fattaði að þetta var draumur!!!
Listen Bender, where's your bathroom?