Stigahóra er maður víst kallaður fyrir að búa til korka hér alveg sama um hvað korkurinn er um.

Til hvers eru þessi stig? Getur einhver svarað því?

Ég myndi fjarlægja þetta stigakerfi ef ég væri þú vefstjóri af því að þetta er farið að verða svoldið öfgakennt. Fólk er farið að halda að það græðir eitthvað á þessu stigagjöfum og það verður afbrýðissamt ef einhver fær stig sem það telur það ekki eiga skilið.

Væri ekki bara betra að fjarlægja þessa stigagjafakerfi og láta bara fólk gefa álit fyrir hvern kork og greinar og allar innsendingarnar. Í staðinn fyrir þessa tilgangslausu stigagjafir? Þá veit maður hvað er þess virði að skoða.

Og maður losnar þá við að vera kallaður stigahóra!

Í stuttu máli sagt: Vinsamlegast fjarlægðu þetta stigakerfi og settu álitsgjafarkerfi í staðinn.

Það myndi borga sig vefstjóri